Jóhanna Elín Halldórsdóttir verður áfram í Víkingi en hún hefur framlengt samning sinn við félagið til næstu tveggja ára.
Árið 2024 gekk Jóhanna Elín í raðir Víkings frá Selfossi og hefur vaxið í hlutverki sínu hjá félaginu.
Á síðustu leiktíð spilaði hún 20 leiki í Bestu deildinni og verið öflug á þessu undirbúningstímabili með átta mörk í sjö leikjum í Reykjavíkurmóti og Lengjubikar.
Hún hefur nú haldið tryggð sína við Víking og framlengt samning sinn út 2028.
„Við erum afar ánægð að framlengja samninginn við Jóhönnu. Hún er metnaðarfull, kröftug og getur leyst margar stöður á vellinum. Það verður spennandi að halda áfram að fylgjast með henni þróa sinn leik í Hamingjunni,“ sagði Einar Guðnason, þjálfari Víkings, um nýjan samning Jóhönnu.
Jóhanna, sem er fædd árið 2006, á 15 landsleiki að baki með yngri landsliðum Íslands og eitt mark.
Knattspyrnudeild Víkings hefur gengið frá nýjum tveggja ára samningi við Jóhönnu Elínu Halldórsdóttur. ??????https://t.co/kuKhSEkZrB pic.twitter.com/NOO5xI7dO9
— Víkingur Fótbolti (@vikingurfc) March 15, 2026
Athugasemdir


