Stórlið berjast um Wharton - Liverpool og Man Utd á eftir leikmanni Leipzig - Real Madrid hlustar á tilboð í Camavinga
   mán 16. mars 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ísland í dag - Blikar geta farið langleiðina með að tryggja toppsætið
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks heimsækja Fram í lokaumferðinni í B-riðli A-deildar Lengjubikars kvenna klukkan 19:00 í kvöld.

Framarar unnu sinn fyrsta leik á dögunum er þær lögðu Val nokkuð óvænt með tveimur mörkum gegn einu.

Blikar hafa gert góða hluti og unnið tvo af þremur leikjum sínum, en takist liðinu að vinna í kvöld mun það svo gott sem tryggja sér toppsæti riðilsins.

Framarar eiga líka möguleika á að vinna riðilinn en til þess þarf liðið að vinna Blika og treysta á að ÍBV hafi sigur gegn Víkingum í lokaleiknum.

Leikur dagsins:
19:00 Fram - Breiðablik (Lambhagavöllurinn)
Stöðutaflan Ísland Lengjubikar kvenna
  L U J T ms: mf: mun Stig
Athugasemdir
banner