Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   sun 22. febrúar 2026 20:18
Ívan Guðjón Baldursson
Arteta: Titilbaráttan verður spennandi þar til í lokin
Mynd: EPA
Mikel Arteta var himinlifandi eftir sannfærandi sigur Arsenal í nágrannaslagnum gegn Tottenham í dag.

Sigurinn var kærkominn fyrir lærlinga Arteta eftir tvö jafntefli í röð með Manchester City andandi ofan í hálsmálið á sér í titilbaráttunni.

„Ég er mjög ánægður og stoltur af strákunum. Þeir sýndu mikil gæði til að sigra leikinn með þessum hætti. Ég veit hversu mikið strákarnir þrá þetta og það er eiginlega ótrúlegt að hugsa til þess hvernig við gerðum jafntefli við Wolves eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir. Ég get ekki ennþá skilið það," sagði Arteta.

„Okkur leið eins og það væri heimsendir en fegurðin við fótbolta er að það er yfirleitt annað tækifæri í boði og við nýttum það. Við nýttum tækifærið á erfiðum leikvangi gegn erkifjendunum og það er virkilega mikilvægt fyrir stöðuna í deildinni og fyrir stuðningsmenn.

„Þessi titilbarátta mun vera spennandi allt þar til í lokin, það er ennþá mikið eftir. Við verðum að halda áfram að sýna úr hverju við erum gerðir."

Arteta hrósaði markaskorurunum Viktor Gyökeres og Eberechi Eze í hástert, en báðir leikmennirnir voru keyptir inn til félagsins síðasta sumar.

„Viktor hefur verið frábær fyrir okkur, stórir leikmenn stíga upp á mikilvægum stundum og hann er að gera það. Hann var frábær í dag. Mér líður eins og ég hafi séð glitta í ýmislegt hjá honum hingað til á tímabilinu en í dag var hann stórkostlegur.

„Eze var stórkostlegur í dag hann spilaði með svo mikið sjálfstraust. Hann er að leggja mikla vinnu á sig til að aðlagast liðinu og leikstílnum og því sem við viljum fá frá honum. Við þurftum á þessari frammistöðu að halda frá honum."

Athugasemdir
banner
banner