Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   sun 22. febrúar 2026 16:58
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Nadir hetja Garðs
Mynd: Keflavík
Þróttur V. 2 - 3 Víðir
1-0 Eiður Jack Erlingsson ('15)
1-1 Nadir Simon Moukhliss ('48)
2-1 Cristovao A. F. Da S. Martins, sjálfsmark ('53)
2-2 Anton Breki Óskarsson, sjálfsmark ('79)
2-3 Nadir Simon Moukhliss ('94)
Rautt spjald: Mirza Hasecic, Þróttur ('23)

Þróttur Vogum og Víðir Garði mættust í Suðurnesjaslag í 2. umferð Lengjubikarsins í dag, en leikurinn var spilaður í Breiðholti.

Eiður Jack Erlingsson skoraði eina markið í fyrri hálfleiknum fyrir Þróttara en samherji hans Mirza Hasecic lét reka sig af velli skömmu síðar.

Nadir Simon Moukhliss, efnilegur lánsmaður frá Keflavík, jafnaði metin fyrir Garðsmenn í upphafi síðari hálfleiks en skömmu síðar endurheimtu Vogamenn forystuna með sjálfsmarki.

Annað sjálfsmark leit dagsins ljós á 79. mínútu og var staðan þá orðin jöfn, 2-2. Tíu leikmenn Þróttar virtust ætla að halda út en þeim tókst það ekki. Nadir var á ferðinni seint í uppbótartíma til að gera sigurmark fyrir Víði, svo lokatölur urðu 2-3.

Víðir er með fjögur stig eftir tvær umferðir og er Nadir búinn að skora fjögur af fimm mörkum liðsins. Þróttur er án stiga.

Liðin áttust við í eina leik dagsins í B-deild Lengjubikarsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner