Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 22. mars 2023 08:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Laus við krabbameinið - Skoraði þrennu í fyrri hálfleik
Mynd: Getty Images

David Brooks leikmaður Bournemouth spilaði annan leik sinn í búningi Bournemouth á þessu tímabili í gær. Hann skoraði þrennu fyrir uppbyggingarlið félagsins.


Liðið keppir í Hampshire Senior Cup en liðið mætti Portsmouth í gær. Leiknum lauk með 5-2 sigri Bournemouth en Brooks skoraði þrennuna í fyrri hálfleik.

Hann var í fyrsta sinn í leikmannahópi Bournemouth gegn Liverpool á dögunum eftir að hafa sigrast á krabbameini og lék rúmar 10 mínútur í leik gegn Aston Villa um síðustu helgi.

Uppbyggingarlið Bournemouth er, eins og nafnið gefur til kynna aðallega nýtt í að byggja upp yngri leikmenn. Liðið mætti Portsmouth sem tefldi fram sjö leikmönnum úr aðalliðinu.

Liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum með sigrinum.


Athugasemdir
banner
banner
banner