Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   mán 23. febrúar 2026 15:11
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Betur fór en áhorfðist hjá Björgvini Brima
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Björgvin Brimi Andrésson (2008) meiddist skömmu eftir komu sína til Gróttu en þar er hann á láni frá Víkingi. Óttast var um að hann hefði orðið fyrir alvarlegum hnémeiðslum, en svo reyndist ekki vera.

Eftir myndatöku og skoðun kom í ljós að hann hefði tognað á liðbandi en bæði liðþófi og krossband eru í lagi.

Hann mun ekki spila á móti Völsungi á föstudaginn í Lengjubikarnum en Gróttumenn vonast til þess að hann verði orðinn góður þegar liðið fer í æfingaferð um miðjan mars.

Grótta endaði í 2. sæti 2. deildar í fyrra og verður í Lengjudeildinni í sumar. Björgvin Brimi var valinn efnilegasti leikmaður 2. deildar á síðasta tímabili sem leikmaður Gróttu, í vetur samdi hann svo við Víking og var lánaður til baka til Gróttu fyrr í þessum mánuði.
Athugasemdir
banner
banner