Man Utd ætlar að hreinsa til í leikmannahópnum - Vardy orðaður við Valencia
   fös 23. maí 2025 20:23
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Postecoglou: Sería þrjú er alltaf betri en sería tvö
Mynd: EPA
Tottenham vann Man Utd í úrslitum Evrópudeildarinnar á dögunum. Ange Postecoglou sagði það í september á síðasta ári að hann hafi alltaf unnið titil á sínu öðru ári og hann stóð við stóru orðin.

Liðið fagnaði titlinum í dag með því að keyra á rútu um Lundúnir fyrri framan þúsundir stuðningsmanna liðsins.

Gengi liðsins í deildinni hefur verið afar slæmt en liðið er í 17. sæti fyrir lokaumferðina. Postecoglou ávarpaði stuðningsmenn liðsins og fullvissaði þá um að næsta tímabil verði betra.

„Sería þrjú er alltaf betri en sería tvö í öllum bestu sjónvarpsseríunum," sagði Postecoglou.
Athugasemdir