Neil Warnock, knattspyrnustjóri Middlesbrough, segir að miðvörðurinn Dael Fry hafi verið ansi nálægt því að missa auga í 0-1 tapi gegn Blackburn í Championship-deildinni á Englandi í dag.
Jarrad Branthwaite fór ansi hátt með fótinn í Fry snemma leiks inn í vítateignum. Hann hins vegar slapp með það, hann fékk hvorki spjald né vítaspyrnu dæmda á sig.
Warnock var afar ósáttur við brotið og lét óánægju sína í ljós eftir leikinn.
„Læknirinn segir að hann hafi verið millimetra frá því að missa augað," sagði Warnock eftir leikinn.
„Þetta er rautt spjald, öryggi leikmannsins var í hættu. Þetta átti að vera rautt spjald. Þetta breytti leiknum og ég er miður mín fyrir Dael."
How Braithwaite is still on the park after this illegal, horrendous challenge on Dael Fry’s face with his studs is farcical. Let’s hope Dale makes speedy recovery. pic.twitter.com/grbWkOh8rc
— bernie slaven (@bernieslaven) January 24, 2021
Battered and bruised @Daelfry1 pic.twitter.com/O4cbo1ykiA
— Middlesbrough FC (@Boro) January 24, 2021
Athugasemdir