Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 25. mars 2020 13:30
Magnús Már Einarsson
Antonio í Tottenham treyju eftir tap í FIFA
Michal Antonio.
Michal Antonio.
Mynd: Getty Images
Michail Antonio, leikmaður West Ham, varð að klæðast treyju Tottenham á dögunum eftir að hann tapaði leik í FIFA 20

Antonio var að spila FIFA við Ryan Sessegnon leikmann Tottenham en leikurinn fór fram síðastliðinn föstudag, á sama tíma og liðin áttu að mætast í ensku úrvalsdeildinni.

Antonio tapaði 2-0 og hann varð því að klæðast Tottenham treyju eftir veðmál sem hann gerði við Sessegnon.

Hann var þó fljótur að rífa sig úr Tottenham treyjunni en undir henni var hann í treyju West Ham.

Antonio grínaðist með það á Twitter að fjarstýringin hans hafi örugglega verið biluð þegar leikurinn fór fram.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner