Barcelona undirbýr tilboð í Lisandro Martinez - Curtis Jones orðaður við Inter - Camavinga orðaður við Arsenal og Liverpool
   lau 31. janúar 2026 23:55
Brynjar Ingi Erluson
Stórsigur Mónakó - Greenwood skoraði og lagði upp
Mason Greenwood er óstöðvandi með Marseille
Mason Greenwood er óstöðvandi með Marseille
Mynd: EPA
Englendingurinn Mason Greenwood skilaði enn og aftur frábærri frammistöðu með Marseille sem kastaði frá sér sigrinum í 2-2 jafntefli gegn Paris FC í frönsku deildinni í dag.

Greenwood hefur farið hamförum með Marseille á tímabilinu, en hann skoraði sitt 13. deildarmark úr vítaspyrnu á 18. mínútu áður en hann lagði upp annað mark liðsins fyrir Pierre-Emerick Aubameyang snemma í þeim síðari.

Alls hefur hann komið að 28 mörkum í 30 leikjum í öllum keppnum á leiktíðinni, en það er morgunljóst að mörg af stærstu félögum heims munu renna hýru auga til hans í sumar.

Marseille, sem er með gríðarlega sterkan hóp, mistókst hins vegar að halda út. Mark frá Jonathan Ikone á 82. mínútu og vítaspyrna Ilan Kebbal seint í uppbótartíma slökkti í gleði Marseille-manna sem eru í 3. sæti með 39 stig, nú sjö stigum frá toppliði Lens.

Mónakó fagnaði á meðan 4-0 stórsigri á Rennes. Ansu Fati, sem er á láni frá Barcelona, skoraði fyrsta markið seint í fyrri hálfleiknum og þá skoruðu þeir Maghnes Akliouche, Mamadou Coulibaly og Stanis Idumbo allir í þeim síðari.

Paul Pogba, sem gekk í raðir félagsins í sumar, var ekki með vegna meiðsla.

Mónakó er í 10. sæti með 27 stig en Rennes í 6. sæti með 31 stig.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner