Mathias Rosenörn er mættur í Kaplakrika og virðist allt stefna í að hann verði leikmaður FH.
Danski markmaðurinn hefur verið orðaður við FH að undanförnu en hann hefur verið án félags frá því að hann fékk sig lausan frá Stjörnunni síðasta sumar.
Danski markmaðurinn hefur verið orðaður við FH að undanförnu en hann hefur verið án félags frá því að hann fékk sig lausan frá Stjörnunni síðasta sumar.
Rosenörn er 31 árs Dani sem kom fyrst til Íslands fyrir tímabilið 2023 og varði þá mark Keflavíkur. Hann samdi svo við Stjörnuna fyrir síðasta tímabil og var þar í samkeppni við Árna Snæ Ólafsson.
Ef félagaskiptin ganga eftir verður Rosenörn þriðji leikmaðurinn sem FH krækir í þennan veturinn en áður komu þeir Bragi Karl Bjarkason frá ÍR og Birkir Valur Jónsson frá HK.
Athugasemdir