Nokkrir æfingaleikir hjá kvennaliðum fóru fram um helgina og hafa nokkur félög sagt frá því hvernig þeir leikir fóru. Þær upplýsingar má sjá hér að neðan.
Stjarnan lék á laugardag tvo æfingaleiki, liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Gróttu og tapaði 1-4 í Bestu deildar slag gegn FH. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir skoraði mark Stjörnunnar gegn FH. Harpa Helgadóttir skoraði fyrsta mark FH í leiknum, Berglind Freyja Hlynsdóttir skoraði næstu tvö og Ída Marín Hermannsdóttir skoraði svo fjórða markið.
Hulda Hrund Arnarsdóttir skoraði mark Stjörnunnar gegn Gróttu og Birna Hrólfsdóttir skoraði mark Gróttu.
Þróttur vann 1-0 sigur á ÍBV í Bestu deildar slag og gerði Steinunn Lára Ingvarsdóttir (2008) eina mark leiksins.

Þór/KA tók á móti grönnum sínum í Tindastóli á laugardag. Leikurinn var liður í Kjarnafæðimótinu og urðu lokatölur 12-0 fyrir Þór/KA. Leikurinn var skráður Þór/KA2 gegn Tindastóki en Þór/KA mætti með sterkt lið til leiks. Þór/KA og Þór/KA2 mætast í úrslitaleik mótsins.
Mörk: Ísey Ragnarsdóttir 4, Birgitta Rún Finnbogadóttir 2, Ragnheiður Sara Steindórsdóttir 2, Sigyn Elmarsdóttir 2, Bríet Fjóla Björnsdóttir og Elísa Bríet Björnsdóttir.
Stoðsendingar: Eva Dolina-Sokolowska 3, Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir, Emma Júlía Cariglia, Hafdís Nína Elmarsdóttir, Júlía Karen Magnúsdóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir og Ragnheiður Sara Steindórsdóttir.
Lengjudeildarlið Selfoss og ÍA mættust á laugardag og vann Selfoss 4-2 sigur. Ásdís Erla Helgadóttir skoraði þrennu fyrir Selfoss og Sólrún Njarðardóttir setti eitt. Erna Björt Elíasdóttir og Elvira Agla Gunnarsdóttir skoruðu mörk Skagakvenna.
Á föstudag vann 2. deildar lið Afturelding Lengjudeildarlið Hauka 3-1. Magðalena Ólafsdóttir, Adna Mesetovic og Ísabella Björt Þórsdóttir skoruðu mörk Aftureldingar.
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir