Arsenal er komið í úrslit enska deildabikarsins eftir sigur á Chelsea í undanúrslitunum.
Arsenal vann 3-2 á Stamford Bridge í fyrri leiknum og Kai Havertz tryggði liðinu 1-0 sigur á Emirates í kvöld með marki í blálokinn.
Mikel Arteta var himinnlifandi þegar ITV ræddi við hann eftir leikinn.

„Naut ég mín? Mjög mikið, sérstaklega í lokin. Við vissum að þetta yrði mikil barátta, þessi seigla, þessi skýrleiki til að skilja hvers konar leik við áttum að spila, við gerðum það svo vel," sagði Arteta.
„Það var sérstök stemning á leikvanginum okkar. Það skiptir svo miklu máli. Við höfum beðið í nokkur ár eftir að komast í þessa stöðu og við munum örugglega njóta úrslitaleiksins.“
Athugasemdir