Auknar líkur á að Guardiola hætti með City - Alonso, Maresca og Fabregas á lista - Rashford vill ekki snúa aftur til Man Utd
   þri 03. febrúar 2026 16:30
Elvar Geir Magnússon
Ísland hefur spilað á vellinum þar sem keppt verður um Ofurskálina
Byrjunarlið Íslands í Santa Clara.
Byrjunarlið Íslands í Santa Clara.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á sunnudagskvöld verður úrslitaleikur ameríska fótboltans en þá keppa Seattle Seahawks og New England Patriots um Ofurskálina, Super Bowl.

Leikið verður á hinum glæsilega Levi's leikvangi, heimavelli San Francisco 49ers.

Íslenska landsliðið í hinum eina sanna fótbolta hefur spilað á þessum leikvangi en það var vináttulandsleikur gegn Mexíkó í mars 2018, í undirbúningi fyrir HM í Rússlandi.

Um 70 þúsund áhorfendur voru á þeim leik, fullur völlur, og stemningin mikil. Fyrir leik bjuggu stuðningsmenn Mexíkó til mikið fjör á ógnarstóru bílaplaninu við völlinn og héldu svokallað Tailgate partí.

Í leiknum sjálfum fengu liðin svipað mörg færi en Mexíkóar voru skilvirkari og unnu 3-0 sigur. Hér má lesa umfjöllun um leikinn.

Hér má sjá nokkrar myndir frá umræddum leik.
Athugasemdir
banner
banner