N'Golo Kante hefur ákveðið að mæta ekki til æfinga hjá Al-Ittihad í Sádi-Arabíu eftir að félagaskipti hans til Fenerbahce í Tyrkalandi fóru ekki í gegn.
Það var allt klappað og klárt en Fenerbahce sagði frá því í yfirlýsingu að ákveðnir pappírar hafi ekki skilað sér í tæka tíð frá Al-Ittihad.
Það var allt klappað og klárt en Fenerbahce sagði frá því í yfirlýsingu að ákveðnir pappírar hafi ekki skilað sér í tæka tíð frá Al-Ittihad.
Fenerbahce reyndi að fá framlengingu á fresti frá FIFA til að klára kaupin á Kante en fékk ekki.
Sem hluti af samkomulaginu átti marokkóski sóknarmaðurinn Youssef En-Nesyri að fara til Al-Ittihad. Hann átti að fylla skarð Karim Benzema sem fór til Al-Hilal.
Athugasemdir


