Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
   mið 04. febrúar 2026 11:30
Elvar Geir Magnússon
Fagnaði með því að faðma Flick - „Elskum hann allir“
Mynd: EPA
Hansi Flick, stjóri Barcelona.
Hansi Flick, stjóri Barcelona.
Mynd: EPA
Hansi Flick, stjóri Barcelona, er feikilega vinsæll meðal leikmanna sinna og það endurspeglaðist í fagnaðarlátum fyrirliðans Ronald Araujo þegar hann skoraði sigurmarkið gegn Albacete í bikarnum í gær.

Araujo var að leika sinn fyrsta byrjunarliðsleik á almanaksárinu 2026 en fyrir áramót fór hann í leyfi til að jafna sig andlega eftir að hann fékk rauða spjaldið í tapi gegn Chelsea í Meistaradeildinni. Hann hafði fengið mikla gagnrýni.

Araujo hafði fjórum sinnum komið inn af bekknum áður en hann var mættur aftur í byrjunarliðið í gær.

Araujo kom Barcelona í 2-0, fagnaði fyrst með liðsfélögum sínum en hljóp svo að hliðarlínunni og faðmaði Flick.

„Hansi er okkur sem faðir, við elskum hann allir. Hann veit hvernig á að höndla stöðu hvers og eins leikmanns. Ég gaf honum faðmlag því hann hefur verið mér svo frábær," sagði Araujo eftir leikinn.

Leikmenn Barcelona hafa verið duglegir að hrósa Flick opinberlega en áður hafa Raphinha, Pedri og Marcus Rashford gert það.

Albacete minnkaði muninn í 2-1 í leiknum í gær. en komst ekki lengra og Börsungar eru komnir í undanúrslit spænska Konungsbikarsins.


Athugasemdir
banner
banner