Ítalska félagið Fiorentina, sem landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson er á mála hjá, hefur svarað gagnrýni forseta Hellas Verona varðandi félagaskipti Christian Kouame, en þau voru ekki samþykkt af ítölsku deildinni rétt fyrir gluggalok.
Cagliari og Hellas Verona voru á eftir framherjanum, en á endanum valdi Kouame að fara til Verona.
Félagið hafði náð samkomulagi við Fiorentina um að fá hann á láni með kaupskyldu. Verona sendi aftur á Fiorentina en þar var búið að breyta skilyrðum lánssamningsins.
Italo Zanzi, forseti Verona, segir ábyrgðina liggja hjá Fiorentina, en Flórensarfélagið hefur vísað þeim ummælum til föðurhúsanna.
Fiorentina óskaði eftir því að Verona myndi uppfæra gögnin og gerði um leið heiðursmannasamkomulag um frest á skilyrðum kaupskyldunnar.
Verona sendi gögnin til ítölsku deildarinnar, en þar vantaði undirskrift Fiorentina, leikmannsins og Verona. Þar með gat deildin ekki samþykkt félagaskiptin.
Kouame, sem er 28 ára gamall Fílabeinsstrendingur, er því enn á mála hjá Fiorentina, en nú er verið að ræða mögulega riftun á samningnum eða koma honum í annað félagið.
Glugginn í Grikklandi og Tyrklandi er opinn til föstudags og þá er glugginn í Bandaríkjunum opinn til 26. mars.
Athugasemdir




