Man Utd gæti keypt McTominay til baka - Man Utd hrifið af Sangare - Real Madrid með augun á Van de Ven
   mið 04. febrúar 2026 14:45
Elvar Geir Magnússon
Fyrirliði Napoli fer undir hnífinn
Mynd: EPA
Giovanni Di Lorenzo, fyrirliði Ítalíumeistara Napoli, spilar ekki á næstunni en hann þarf að fara í aðgerð.

Di Lorenzo hefur verið að spila í gegnum meiðsli á tímabilinu en komst að þolmörkum í leik gegn Fiorentina og fór af velli á hnjaskvagni.

Nú hefur Napoli tilkynnt að þessi 32 ára fjölhæfi varnarmaður fari í aðgerð en hann entist aðeins í hálftíma gegn Fiorentina.

Áður hafði Sky Sports greint frá því að hann yrði frá í að minnst kosti einn og hálfan mánuð.

Di Lorenzo hefur leikið 53 landsleiki fyrir Ítalíu en í lok mars keppir Ítalía í umspili um að komast á HM. Ef Ítalía vinnur Norður-Írland mun liðið leika gegn Wales eða Bosníu um sæti á mótinu.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 26 21 1 4 62 21 +41 64
2 Milan 26 15 9 2 41 20 +21 54
3 Roma 26 16 2 8 34 16 +18 50
4 Napoli 26 15 5 6 39 27 +12 50
5 Juventus 26 13 7 6 43 25 +18 46
6 Como 26 12 9 5 41 19 +22 45
7 Atalanta 26 12 9 5 36 22 +14 45
8 Bologna 26 10 6 10 35 32 +3 36
9 Sassuolo 26 10 5 11 32 35 -3 35
10 Lazio 26 8 10 8 26 25 +1 34
11 Udinese 26 9 5 12 28 39 -11 32
12 Parma 26 8 8 10 19 31 -12 32
13 Cagliari 26 7 8 11 28 35 -7 29
14 Genoa 26 6 9 11 32 37 -5 27
15 Torino 26 7 6 13 25 47 -22 27
16 Fiorentina 26 5 9 12 30 39 -9 24
17 Cremonese 26 5 9 12 21 36 -15 24
18 Lecce 26 6 6 14 17 33 -16 24
19 Pisa 26 1 12 13 20 43 -23 15
20 Verona 26 2 9 15 19 46 -27 15
Athugasemdir
banner