Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
banner
   mið 04. febrúar 2026 15:23
Elvar Geir Magnússon
Hefur hlotið gælunafnið 'Pizza Crouch'
Mynd: Nottingham Forest
Nottingham Forest fékk sóknarmanninn Lorenzo Lucca frá Ítalíumeisturum Napoli í janúarglugganum. Hann hefur þegar fengið athyglisvert gælunafn frá stuðningsmönnum Forest sem eru farnir að kalla hann 'Pizza Crouch'.

Lucca er yfir 2 metrar á hæð og hefur fengið samanburð við enska sóknarmanninn Peter Crouch vegna hæðarinnar. Með því að blanda við ítölsku tengingunni er pizzunni svo bætt við gælunafnið.

Lucca á enn eftir að spila sinn fyrsta leik fyrir Forest en hann var ónotaður varamaður í 1-1 jafnteflinu gegn Crystal Palace.

Lucca er framherji sem gerði fína hluti með Udinese á síðustu leiktíð og var keyptur til Napoli um sumarið. Honum hefur ekki tekist að festa sig í sessi í byrjunarliðinu þar sem Rasmus Höjlund og Romelu Lukaku eru framar í goggunarröðinni.

Lucca er 25 ára gamall og mikill skallamaður. Hann hefur aðeins skorað 2 mörk í 23 leikjum með Napoli en á síðustu leiktíð skoraði hann 14 í 36 leikjum með Udinese.
Athugasemdir
banner
banner