Ásdís Karen Halldórsdóttir og Hildur Antonsdóttir voru báðar í tapliðum í bikarnum í dag.
Ásdís var í byrjunarliði Braga sem tapaði fyrri leiknum í undanúrslitum portúgalska bikarsins gegn Benfica, 1-0, á heimavelli sínum.
Braga fær tækifærið til þess að snúa taflinu við eftir rúman mánuð og koma sér í úrslitaleikinn.
Hildur var á meðan á miðsvæðinu hjá CFF Madrid sem datt úr leik í 8-liða úrslitum spænska bikarsins eftir að hafa tapað fyrir Tenerife, 1-0, en sigurmarkið kom eftir tæpar tvær mínútur.
Madrídarliðið hefur sex sinnum komist í 8-liða úrslit keppninnar og einu sinni í undanúrslit frá því félagið var sett á laggirnar árið 2010.
Athugasemdir



