Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
banner
   mið 04. febrúar 2026 08:30
Elvar Geir Magnússon
Liverpool og Real Madrid gætu barist við Man Utd um Wharton
Powerade
Wharton er spennandi miðjumaður.
Wharton er spennandi miðjumaður.
Mynd: EPA
AC Milan, Chelsea og Newcastle hafa öll áhuga á serbneska framherjanum Dusan Vlahovic.
AC Milan, Chelsea og Newcastle hafa öll áhuga á serbneska framherjanum Dusan Vlahovic.
Mynd: EPA
Stórlið eru á eftir miðjumanni Crystal Palace, Manchester United ætlar að styrkja sig í sumar og markvörður Leeds gæti verið á leið til Tyrklands. Slúðurpakkinn er mættur úr prentun.

Liverpool og Real Madrid gætu barist við Manchester United um Adam Wharton (21), miðjumann Crystal Palace og Englands, í sumar. Hann ætti að kosta um 80 milljónir punda. (Mirror)

Manchester United gæti reynt að fá Jean-Philippe Mateta (28) frá Crystal Palace. Franski sóknarmaðurinn var á leið til AC Milan á gluggadeginum en féll á læknisskoðun. (Mirror)

Manchester United vill einnig styrkja miðsvæði sitt og hefur áhuga á Sandro Tonali (25), ítalska miðjumanninum hjá Newcastle. (Metro)

Everton er tilbúið að hlusta á ný tilboð í Dwight McNeil (26) en sala hans til Crystal Palace rann út í sandinn á gluggadaginn. (Football Insider)

AC Milan, Chelsea og Newcastle hafa öll áhuga á serbneska framherjanum Dusan Vlahovic (26) sem verður samningslaus hjá Juventus í sumar. Hann er að jafna sig á meiðslum. (Football Italia)

Newcastle mun gera nýja tilraun til að fá miðjumanninn Patrick Zabi (19) frá Reims í Frakklandi. Fílabeinsstrendingurinn ungi er talinn eiga bjarta framtíð. (The i)

Franski markvörðurinn Illan Meslier (25) hjá Leeds (25) gæti verið á leið til Tyrklands en viðræður við Besiktas standa yfir. (TeamTalk)

Þýski miðjumaðurinn Leon Goretzka (30), sem verður samningslaus hjá Bayern München í sumar, gæti farið til Arsenal á frjálsri sölu. (Bayern Insider)

West Ham gæti rekið stjórann Nuno Espirito Santo án þess að þurfa að greiða honum bætur ef liðið fellur í Championship. (Athletic)
Athugasemdir
banner