Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
   mið 04. febrúar 2026 15:48
Elvar Geir Magnússon
Mac Allister á lista Real Madrid en Vitinha er efstur
Vitinha er efstur á óskalista Real Madrid.
Vitinha er efstur á óskalista Real Madrid.
Mynd: EPA
The Athletic fjallar um leit Real Madrid að styrkingu fyrir miðsvæði sitt þar sem núverandi leikmenn hafi ekki náð að stíga upp og ná sömu hæðum og Toni Kroos og Luka Modric.

Það sé ekkert leyndarmál að efstur á óskalista spænska stórliðsins sé portúgalski landsliðsmaðurinn Vitinha hjá Paris Saint-Germain.

Enzo Fernandez hjá Chelsea hefur einnig verið orðaður við hið konunglega félag Madrídarborgar en sagt að forráðamenn félagsins telji mjög erfitt að landa þeim tveimur af fjárhagslegum ástæðum.

Kees Smit, tvítugur miðjumaður AZ Alkmaar, og Adam Wharton hjá Crystal Palace hafa líka verið orðaðir við Real Madrid en sá síðarnefndi virðist ekki vera lengur á blaði.

Alexis Mac Allister, argentínski miðjumaðurinn hjá Liverpool, er einnig nefndur. Spænska stórliðið sýndi honum áhuga þegar Carlo Ancelotti stýrði liðinu en sagt er að áhuginn sé enn til staðar. Mac Allister er 27 ára og samningsbundinn Liverpool til 2028.

Augljósa styrkingin fyrir Real Madrid er þó Nico Paz, 21 árs Argentínumaður, sem hefur leikið frábærlega með Como á ítalíu. Paz var í akademíu Real Madrid og félagið er með klásúlu um að geta keypt hann til baka í sumar fyrir um 9 milljónir evra.
Athugasemdir
banner