Landsliðsmaðurinn Sverrir Ingi Ingason var í vörn Panathinaikos sem tapaði fyrir PAOK, 1-0, í fyrri undanúrslitaleik liðanna í gríska bikarnum í kvöld.
Sverrir er orðinn fastamaður í liði Rafael Benítez eftir að hafa verið inn og út úr liðinu síðustu mánuði.
Miðvörðurinn lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Panathinaikos gegn sínum gömlu félögum i PAOK, en eina mark leiksins gerði gríski sóknarmaðurinn Georgio Giakoumakis úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur eftir að Davide Calabria, fyrrum fyrirliði AC Milan, gerðist brotlegur í teignum.
Leikurinn fór fram á heimavelli Panathinaikos í Aþenu en seinni leikurinn á erfiðum útivelli PAOK í Thessaloniki í næstu viku.
Hörður Björgvin Magnússon var ekki með Levadiakos sem gerði 1-1 jafntefli við OFI Crete á Krít. Hann er að glíma við vírus, en ætti að vera orðinn klár fyrir síðari leikinn sem er spilaður í Livadeia í næstu viku.
Levadiakos á möguleika á að komast í bikarúrslit í fyrsta sinn í sögu félagsins takist því að vinna OFI.
Athugasemdir

