Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
   mið 04. febrúar 2026 22:59
Brynjar Ingi Erluson
Þýski bikarinn: Meistararnir ætla að verja titilinn
Deniz Undav er að eiga frábært tímabil með Stuttgart
Deniz Undav er að eiga frábært tímabil með Stuttgart
Mynd: EPA
Holstein Kiel 0 - 3 Stuttgart
0-1 Deniz Undav ('56 )
0-2 Chris Fuhrich ('89 )
0-3 Atakan Karazor ('90 )

Bikarmeistarar Stuttgart unnu 3-0 sigur á Holsten Kiel í 8-liða úrslitum bikarsins í kvöld og eru nú skrefi nær því að verja titilinn.

Deniz Undav, sem hefur verið á eldi á t´mabilinu, skoraði fyrsta mark Stuttgart á 56. mínútu leiksins og lagði síðan upp annað markið fyrir Chris Fuhrich undir lok venjulegs leiktíma.

Atakan Karazor gerði endanlega út um leikinn í uppbótartíma og sendi Stuttgart í undanúrslitin ásamt Bayer Leverkusen, en það mun ráðast í næstu viku hvaða tvö lið fylgja þeim þangað.

Hertha Berlín mætir Freiburg á þriðjudag og degi síðar spilar Bayern München við RB Leipzig.
Athugasemdir
banner
banner