Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
   mið 04. febrúar 2026 11:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins eftir þrjár vikur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla verður spilaður seinna í þessum mánuði, miðvikudaginn 25. febrúar. Þetta kemur fram í svari formanns KRR við fyrirspurn Fótbolta.net.

Í úrslitaleiknum mætast Lengjudeildarlið Þróttar og Íslandsmeistarar Víkings. Leikurinn fer fram á Víkingsvelli og hefst klukkan 19:00.

Ljóst er að Víkingur verður ekki með sitt allra sterkasta lið í leiknum því sama dag spilar íslenska landsliðið vináttuleik gegn Mexíkó og nokkrir Víkingar verða í landsliðshópnum.

Víkingur fékk tíu stig úr fjórum leikjum í riðlakeppni mótsins. Liðið vann ÍR, Leikni og Fjölni en gerði jafntefli við Fram. Þróttur fékk sjö stig úr sínum þremur leikjum í riðlakeppninni. Liðið vann KR og Val en gerði jafntefli við Fylki.

KR vann Reykjavíkurmótið í fyrra eftir úrslitaleik gegn Val.
Athugasemdir
banner