Crysencio Summerville, leikmaður West Ham á Englandi, var afar eftirsóttur í síðasta mánuði, en Hamrarnir höfðu ekki áhuga að leyfa leikmanninum að fara á miðju tímabili. Þetta segir Fabrizio Romano á X.
Summerville hefur verið sjóðandi heitur með West Ham undanfarnar vikur.
Þessi 24 ár gamli vængmaður hefur komið að sex mörkum í nítján deildarleikjum á tímabilinu og eðlilega farinn að vekja áhuga stærri liða.
Romano segir að félög úr ensku úrvalsdeildinni og Seríu A hafi sett sig í samband við West Ham í síðasta mánuði, en að félagið hafi verið mjög skýrt með að vilja ekki selja hann.
Summerville var sjálfur ánægður með það að vera áfram hjá West Ham, en sagan verður önnur í sumar og líklegt að hann verði á faraldsfæti.
West Ham keypti Summerville frá Leeds United fyrir 25 milljónir punda fyrir einu og hálfu ári síðan, en áður var hann á mála hjá Feyenoord í heimalandi sínu. Hann á þá 37 landsleiki og 11 mörk fyrir yngri landslið Hollands.
Athugasemdir




