Ítalski félagaskiptakóngurinn Fabrizio Romano segir ekkert til í því að úrúgvæski sóknarmaðurinn Darwin Nunez sé á leið til Fenerbahce í Tyrklandi.
Erlendir miðlar sögðu frá því á dögunum að Al Hilal hefði samþykkt tilboð Fenerbahce í Nunez, sem gekk í raðir sádi-arabíska félagsins frá Liverpool á síðasta ári.
Romano segir ekkert til í þessum sögusögnum og að Nunez sé ekki á leið til Tyrklands. Glugginn í Tyrklandi lokar á morgun og verður gaman að sjá hvort það gerist eitthvað spennandi þar, en Fenerbahce hefur þegar tekist að landa N´Golo Kante, Matteo Guendouzi, Sidiki Cherif og Anthony Musaba í þessum glugga.
Nunez er 26 ára gamall og skorað 7 mörk með Al Hilal á tímabilinu ásamt því að gefa fimm stoðsendingar.
Al Hilal er á toppnum í sádi-arabísku deildinni með 47 stig, einu stigi meira en Cristiano Ronaldo og félagar í Al Nassr.
Athugasemdir




