Sky Sports valdi Bernardo Silva besta mann leiksins í 2-1 sigri Manchester City á Liverpool á Anfield í kvöld.
Portúgalinn átti frábæran leik hjá Man City og skoraði jöfnunarmarkið sem hvatti liðsfélaga hans til að berjast áfram og sækja sigurmarkið.
Hann fær 8 í einkunn eins og Gianluigi Donnarumma og varamaðurinn Rayan Cherki.
Alisson Becker, markvörður Liverpool, var slakastur með aðeins 5 í einkunn.
Liverpool: Alisson (5), Szoboszlai (7), Konate (6), Van Dijk (6), Kerkez (7), Mac Allister (6), Gravenberch (6), Wirtz (6), Salah (6), Gakpo (6), Ekitike (6).
Man City: Donnarumma (8), Nunes (7), Khusanov (6), Guehi (7), Ait-Nouri (7), Rodri (6), Silva (8), O’Reilly (7), Semenyo (6), Marmoush (6), Haaland (7).
Varamenn: Dias (6), Cherki (8).
Athugasemdir




