Elías Rafn Ólafsson og félagar hans í Midtjylland unnu 2-1 sigur á FCK í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Sigurinn kom Midtjylland einu stigi á eftir AGF í titilbaráttunni.
Landsliðsmarkvörðurinn átti góðan leik í markinu en hann var að mæta hinum bráðefnilega Viktori Bjarka Daðasyni, sem byrjaði hjá FCK.
Staðan var markalaus í hálfleik, en Viktor Bjarki fór af velli á 81. mínútu og þá byrjaði ballið.
Midtjylland skoraði tvö mörk á tveimur mínútum áður en Mohamed Elyounoussi minnkaði muninn undir lok uppbótartímans.
Midtjylland er í öðru sæti með 39 stig, einu stigi frá toppliði AGF en FCK er í 5. sæti með 28 stig.
Ísak Andri Sigurgeirsson þreytti frumraun sína með Viborg sem marði 1-0 sigur á Silkeborg. Ísak spilaði rúmar tuttugu mínútur með Viborg sem er í 6. sæti með 27 stig.
Brynjólfur Andersen Willumsson spilaði síðasta stundarfjórðunginn hjá Groningen sem tapaði fyrir PSV, 2-1, í hollensku úrvalsdeildinni. Groningen er í 8. sæti með 31 stig.
Athugasemdir



