Rodri, Leon Goretzka, Dusan Vlahovic, Sandro Tonali og Marcus Rashford eru meðal þeirra sem koma við sögu
   sun 08. febrúar 2026 17:50
Brynjar Ingi Erluson
Inter hafði betur í Íslendingaslag - Stórt tap hjá Hildi
Kvenaboltinn
Cecilía Rán hélt hreinu og vann í Íslendingaslag
Cecilía Rán hélt hreinu og vann í Íslendingaslag
Mynd: EPA
Inter vann þægilegan 3-0 sigur á Fiorentina í Íslendingaslag í Seríu A í ítalska kvennaboltanum í dag.

Cecilía Rán Rúnarsdóttir stóð á milli stanganna hjá Inter og hélt hreinu laki.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom inn af bekknum hjá Inter í þeim síðari.

Katla Tryggvadóttir byrjaði hjá Fiorentina en Hlín Eiríksdóttir kom inn á fyrir hana þegar hálftími var eftir. Íris Ómarsdóttir byrjaði einnig hjá Flórensarliðinu.

Inter er í öðru sæti deildarinnar með 27 stig en Fiorentina í 7. sæti með 18 stig.

Hildur Antonsdóttir var í byrjunarliði Madrid CFF sem tapaði fyrir Deportivo La Coruna, 6-1, í Liga F á Spáni.

Madrídarliðið hefur átt ágætis tímabil en þetta tap kom sérstaklega á óvart þar sem Deportivo er sex stigum á eftir Madrid þegar nítján umferðir hafa verið leiknar. Madrid er í 10. sæti með 26 stig, en Deportivo í 11. sæti með 20 stig.

Ásdís Karen Halldórsdóttir byrjaði hjá Braga sem gerði markalaust jafntefli við Valadares Gaia í portúgölsku deildinni. Braga er í 6. sæti með 13 stig.
Athugasemdir
banner
banner