Tindastóll 0 - 16 ÍBV
0-1 Olga Sevcova ('6 )
0-2 Milena Patru ('13 )
0-3 Milena Patru ('22 )
0-4 Fridrikka Marie Clementsen ('32 )
0-5 Kristín Klara Óskarsdóttir ('33 )
0-6 Avery Mae Vanderven ('35 )
0-7 Sandra Voitane ('37 )
0-8 Magdalena Jónasdóttir ('39 )
0-9 Allison Grace Lowrey ('67 )
0-10 Allison Grace Lowrey ('69 )
0-11 Olga Sevcova ('75 )
0-12 Olga Sevcova ('77 )
0-13 Kristín Klara Óskarsdóttir ('81 )
0-14 Olga Sevcova ('84 )
0-15 Tanja Harðardóttir ('88 )
0-16 Tanja Harðardóttir ('90 )
0-1 Olga Sevcova ('6 )
0-2 Milena Patru ('13 )
0-3 Milena Patru ('22 )
0-4 Fridrikka Marie Clementsen ('32 )
0-5 Kristín Klara Óskarsdóttir ('33 )
0-6 Avery Mae Vanderven ('35 )
0-7 Sandra Voitane ('37 )
0-8 Magdalena Jónasdóttir ('39 )
0-9 Allison Grace Lowrey ('67 )
0-10 Allison Grace Lowrey ('69 )
0-11 Olga Sevcova ('75 )
0-12 Olga Sevcova ('77 )
0-13 Kristín Klara Óskarsdóttir ('81 )
0-14 Olga Sevcova ('84 )
0-15 Tanja Harðardóttir ('88 )
0-16 Tanja Harðardóttir ('90 )
ÍBV vann ótrúlegan 16-0 stórsigur á Tindastóli í A-deild Lengjubikars kvenna í Akraneshöllinni í dag. Olga Sevcova skoraði fernu fyrir Eyjakonur.
Leikurinn var einstefna frá A til Ö. ÍBV fór með átta marka forystu inn í hálfleikinn.
Milena Patru skoraði tvö og þá gerðu þær Olga Sevcova, Fridrikka Marie Clementsen, Kristín Klara Óskarsdóttir, Avery Mae Vanderven, Sandra Voitane og Magdalena Jónasdóttir allar eitt mark.
Yfirburði Eyjaliðsins héldu áfram í þeim síðari. Allison Grace Lowrey skoraði tvö mörk á tveimur mínútum og þá fullkomnaði Olga þrennu sína með tveimur mörkum á nokkrum mínútum.
Kristín Klara gerði annað mark sitt á 81. mínútu áður en Olga gerði sitt fjórða mark þremur mínútum síðar. Tanja Harðardóttir kórónaði frábæra frammistöðu ÍBV með tveimur mörkum undir lok leiks.
Svakaleg úrslit hjá Eyjakonum sem voru að spila sinn fyrsta leik en næst mæta þær Val á meðan Tindastóll spilar við Fram á Lambhagavellinum.
Athugasemdir


