Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool, segir leiðina langa fyrir liðið að komast í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.
Liverpool tapaði fyrir Manchester City, 2-1, á Anfield í gær eftir ótrúlega endurkomu gestanna.
Þetta var fyrsti sigur Man City á Anfield fyrir framan áhorfendur síðan 2003.
Liverpool-liðið hefur verið í miklu ójafnvægi síðasta árið, en það byrjaði að sjást í lok síðasta tímabils þegar Liverpool var svo gott sem búið að tryggja sér titilinn.
Staðan er núna þannig að Liverpool er í 6. sæti með 39 stig, fimm stigum frá öruggu sæti í Meistaradeildina, en það eru yfirgnæfandi líkur á að England fái fimm Meistaradeildarsæti. Chelsea er í 5. sætinu með 43 stig.
Carragher hefur ekki mikla trú á að Liverpool verði meðal fimm efstu miðað við stöðuna á liðinu.
„Nei, í augnablikinu sé ég það ekki gerast. Það þyrfti að vera svakalega sveifla á gengi liðsins og þá eru liðin fyrir ofan þá á miklu skriði.“
„Þetta er slæmt. Þegar þú horfir á deildina hjá Liverpool þá virðist vera löngu lið inn í þessi topp fimm Meistaradeildarsæti. Það er komið bil á milli. Það er hægt að saxa á forskotið, en Liverpool þarf að gera vel í þessum tveimur bikarkeppnum (Meistaradeildin og enski bikarinn) til þess að bjarga tímabilinu,“ sagði Carragher.
Arne Slot, stjóri Liverpool, þarf að finna mann í hægri bakvörðinn gegn Sunderland í miðri viku. Dominik Szoboszlai, sem hefur verið að leysa af þar fékk rauða spjaldið gegn Man City og þá eru þeir Jeremie Frimpong og Conor Bradley frá vegna meiðsla. Óvíst er með þátttöku Joe Gomez sem hefur einnig verið að glíma við meiðsli.
„Þegar þú horfir á bekkinn hjá Liverpool fyrir leikinn gegn Sunderland í miðri viku þá er komið alvöru vandamál fyrir hægri bakvarðarstöðuna. Szoboszlai mun ekki spila.“
Mikilvægir leikmenn Liverpool hafa verið að gera óvenjuleg mistök og þá er Carragher ekki alveg viss með uppstillinguna á liðinu, en hann segir að ýmislegt þurfi að breytast til þess að Liverpool geti náð Meistaradeildarsæti.
„Mörg af þessum mistökum á tímabilinu er eitthvað sem þú gætir ekki trúað frá leikmönnum af þessu kaliberi. Van Dijk gegn Bournemouth, Alisson gegn Man City. Maður trúir ekki að markvörður í þessum gæðaflokki tekur ákvörðun að gera þetta í vítinu.“
„Stjórinn þarf síðan að taka aðra ákvörðun varðandi þessa fjóra fremstu. Ef Liverpool heldur áfram á sömu braut, með þessa fjóra fremst og allir leikir þar sem er sótt á báða bóga þá sé ég ekki hvernig þeir munu komast í Meistaradeildarsæti
„Hvað sem Slot gerir þá virðist eitthvað vera að liðinu og hvernig hópurinn er settur saman. Það er aldrei jafnvægi og þeir eru aldrei með stjórn. Það er löng leið framundan fyrir Liverpool að komast í Meistaradeildina,“ sagði Carragher.
Athugasemdir



