Rodri, Leon Goretzka, Dusan Vlahovic, Sandro Tonali og Marcus Rashford eru meðal þeirra sem koma við sögu
   sun 08. febrúar 2026 15:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stefán Ingi skoraði í frumrauninni - Grátlegt jafntefli
Mynd: GAE
Stefán Ingi Sigurðsson skoraði sitt fyrsta mark í sínum fyrsta leik fyrir hollenska liðið Go Ahead Eagles í dag. Liðið fékk Telstar í heimsókn en Nökkvi Þeyr Þórisson var í byrjunarliði Telstar í fyrsta sinn.

Stefán Ingi gekk til liðs við Go Ahead Eagles á dögunum frá norska liðinu Sandefjord. Hann byrjaði á bekknum í dag en kom inn á 81. mínútu og fjórum mínútum síðar kom hann liðinu í 1-0 forystu.

Þegar fimm mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma jafnaði Telstar og þar við sat, 1-1 lokatölur. Nökkvi Þeyr gekk til liðs við Telstar frá Sparta Rotterdam en hann spilaði sinn fyrsta leik í dag og var tekinn af velli eftir rúmlega klukkutíma leik.

Go Ahead er í 14. sæti með 23 stig eftir 21 umferð en Telstar er i 16. sæti með 17 stig eftir 22 leiki spilaða.

Kristófer Jónsson var í byrjunarliði Triestina sem vann U23 lið Inter 4-1 í ítölsku C-deildinni. Triestina er á botni A-riðils með fjögur stig eftir 25 umferðir.

Óttar Magnús Karlsson spilaði tæpan klukkutíma þegar Renate gerði 1-1 jafntefli gegn Ospiitaletto í sömu deild. Renate er í 5. sæti með 39 stig.
Athugasemdir
banner
banner