Anderson, Jones, Trafford, Maguire, Griezmann, Alvarez, Alisson og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 08. febrúar 2026 17:22
Brynjar Ingi Erluson
Stjarnan lagði úkraínskt úrvalsdeildarlið í æfingaleik
Haukur Brink skoraði sigurmark Stjörnunnar
Haukur Brink skoraði sigurmark Stjörnunnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan vann frækinn 2-1 sigur á úkraínska úrvalsdeildarliðinu Karpaty Lviv í æfingaleik á Alicante í dag.

Stjörnumenn eru í æfingaferð á Alicante að undirbúa sig fyrir komandi tímabil.

Þeir mættu Karpaty í dag og höfðu sigur en Guðmundur Kristjánsson kom Stjörnunni í 1-0 á 4. mínútu áður en Karpaty jafnaði tæpum tuttugu mínútum síðar.

Haukur Brink gerði sigurmark Stjörnunnar tuttugu mínútum fyrir leikslok.

Frábær sigur gegn Karpaty sem er í 9. sæti úkraínsku úrvalsdeildarinnar eftir sextán leiki.

Byrjunarlið Stjörnunnar: Árni Snær Ólafsson (M), Damil Denkerlui, Sindri Þór Ingimarsson, Guðmundur Kristjánsson, Bjarki Hauksson, Jóhann Árni Gunnarsson, Ibrahim Turay, Guðmundur Baldvin Nökkvason, Örvar Eggertsson, Emil Atlason, Haukur Brink.
Athugasemdir
banner
banner