Marcus Rashford hefur samþykkt að ganga alfarið til liðs við Barcelona - Darwin Nunez eftirsóttur - Rodri er orðaður við Real Madrid
   mán 09. febrúar 2026 15:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Albert virðist hafa sloppið við alvarleg meiðsli
Mynd: EPA
Fiorentina gaf í dag út tilkynningu vegna meiðsla Alberts Guðmundssonar. Landsliðsmaðurinn haltraði af velli í byrjun seinni hálfleiks gegn Torino a laugardagskvöld.

Albert fór í læknisskoðun í gær vegna meiðslanna og segir Fiorentina að búið sé að útiloka alvarleg liðbanda meiðsli í ökkla. Fiorentina segir að endurhæfing Alberts sé þegar hafin og staða hans verði endurmetin á næstu dögum.

Næsti leikur Fiorentina er útileikur gegn Como um næstu helgi. Albert hefur verið í stóru hlutverki síðustu vikur og var orðaður við Juventus í félagaskiptaglugganum.

Fiorentina er í fallsæti, þremur stigum frá öruggu sæti þegar fjórtán umferðir eru eftir. Fiorentina var 2-1 yfir gegn Torino fram í uppbótartíma en á fjórðu mínútu hans jöfnuðu gestirnir metin og leikar enduðu með 2-2 jafntefli.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 27 22 1 4 64 21 +43 67
2 Milan 27 16 9 2 43 20 +23 57
3 Napoli 27 16 5 6 41 28 +13 53
4 Roma 27 16 3 8 37 19 +18 51
5 Como 27 13 9 5 44 20 +24 48
6 Juventus 27 13 8 6 46 28 +18 47
7 Atalanta 27 12 9 6 37 24 +13 45
8 Sassuolo 27 11 5 11 34 36 -2 38
9 Bologna 26 10 6 10 35 32 +3 36
10 Lazio 27 8 10 9 26 27 -1 34
11 Parma 27 8 9 10 20 32 -12 33
12 Udinese 26 9 5 12 28 39 -11 32
13 Cagliari 27 7 9 11 29 36 -7 30
14 Torino 27 8 6 13 27 47 -20 30
15 Genoa 27 6 9 12 32 39 -7 27
16 Fiorentina 26 5 9 12 30 39 -9 24
17 Cremonese 27 5 9 13 21 38 -17 24
18 Lecce 27 6 6 15 18 36 -18 24
19 Pisa 26 1 12 13 20 43 -23 15
20 Verona 27 2 9 16 20 48 -28 15
Athugasemdir
banner
banner