Dele Alli, fyrrum landsliðsmaður Englands, tapaði um 150 þúsund pundum (25 milljónum króna) á nokkrum dögum í spilavíti í London.
Daily Mail segir að þessi fyrrum leikmaður Tottenham venji komur sínar í Victoria Casino spilavítið í miðborginni, spili langt fram á nótt og sé að koma út í miklum mínus.
Samkvæmt heimildarmanni blaðsins er það umtalað í spilavítinu að Dele Alli hafi ekki mikla hæfileika í póker og sé vanur því að ganga út með stórt tap. Það sé eftirsóknarvert að spila við hann því menn líti á það sem auðfengið fé.

Dele, sem er 29 ára, er án félags en samningi hans við ítalska félagið Como var rift í september en hann lék aðeins einn leik fyrir liðið. Hann var á sínum tíma stórstjarna í boltanum og var orðaður við Real Madrid en hefur verið í vandræðum utan vallar.
Árið 2023 opna'i hann sig í viðtali og sagðist hafa verið misnotaður þegar hann var sex ára og hafi verið farinn að selja eiturlyf þegar hann var átta ára.
Athugasemdir