Spánarmeistarar Barcelona eru eina liðið í stærstu fimm deildunum sem hefur ekki tapað stigum á heimavelli á þessari leiktíð.
Börsungar unnu öruggan 3-0 sigur á Real Mallorca í La Liga í gær sem var ellefti heimasigur liðsins á leiktíðinni.
Það hefur unnið alla heimaleiki sína til þessa og er eina liðið sem hefur náð þessu afreki í stærstu fimm deildunum.
Þetta er merkilegt fyrir þær sakir að Barcelona hefur spilað á þremur mismunandi völlum á tímabilinu. Það lék á Johan Cruijff-vellinum og Montjuic áður en það sneri aftur á Nou Camp.
Franska liðið Lens kemur næst á eftir með tíu sigra í ellefu leikjum, Arsenal með tíu sigra í þrettán leikjum, Inter með níu af tólf og síðan kemur Bayern með átta af tíu.
Barcelona er á toppnum í La Liga með 58 stig, einu stigi á undan erkifjendum sínum í Real Madrid.
Athugasemdir




