Sandra María Jessen og stöllur hennar í þýska liðinu Köln gerðu svekkjandi markalaust jafntefli við Essen í úrvalsdeildinni í Þýskalandi í kvöld.
Sandra, sem hefur verið með bestu framherjum deildarinnar á tímabilinu, var eins og venjulega í byrjunarliðinu hjá Köln sem var með mikla yfirburði.
Köln átti nítján skot í leiknum en aðeins fimm á markið og náði ekki að kreista fram sigurmarki sem hefði fleytt liðinu upp í 5. sæti deildarinnar.
Í staðinn neyddust þær til að deila stigunum og eru því í 8. sæti með 25 stig eftir sautjána leiki.
Sandra hefur skorað níu deildarmörk á tímabilinu og lagt upp eitt, en aðeins þrír leikmenn hafa skorað fleiri mörk en hún.
Athugasemdir



