Rodri, Leon Goretzka, Dusan Vlahovic, Sandro Tonali og Marcus Rashford eru meðal þeirra sem koma við sögu
banner
   mán 09. febrúar 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Fallbaráttulið fékk þrettán leikmenn í glugganum
Mynd: Sakaryaspor
Þeir sem spila tölvuleikinn Football Manager ættu margir hverjir að þekkja það að fá kaupæði þegar glugginn opnar eða þegar illa gengur, en tyrkneska B-deildarfélagið Sakaryaspor tók þetta skrefinu lengra í vetrarglugganum.

Sakarayaspor er 61 árs gamalt félag sem hefur spilað fimm tímabil í tyrknesku úrvalsdeildinni og einu sinni orðið bikarmeistari.

Hakan Sukur, einn þekktasti leikmaður í sögu Tyrklands, spilaði með liðinu og var einmitt í liðinu sem vann bikarmeistaratitilinn árið 1988, en róðurinn hefur verið þungur síðasta áratuginn.

Það spilar nú í B-deildinni og situr þar í 18. sæti, en stjórnin er allt annað en sátt við árangurinn og boðaði því breytingar í vetrarglugganum.

Þrettán leikmenn voru fengnir til félagsins og eru miklar vonir bundnar við það að þessir leikmenn muni hjálpa liðinu að bjarga sér frá falli.

Leikmennirnir koma margir hverjir frá Tyrklandi, en einnig frá Spáni, Fílabeinsströndinni, Brasilíu og Gana. Þekktasta nafnið til að spila með þeim á þessu tímabili er Wissam Ben Yedder, fyrrum leikmaður Mónakó og franska landsliðsins, en hann samdi við liðið í september en yfirgaf það í síðasta mánuði og samdi við Wydad í Marokkó.

Þetta er þó ekkert í líkingu við sumarið 2022 hjá Nottingham Forest sem setti met í ensku úrvalsdeildinni er það fékk 21 leikmann til félagsins. Tveimur árum síðar fékk Burton Albion 22 leikmenn sem er metið ef horft er yfir félagaskipti ensku deildarkeppninnar.


Athugasemdir
banner
banner