Félög í Sádi-Arabíu hafa sett sig í samband við föruneyti enska landsliðsmannsins Harry Kane, sem er á mála hjá Bayern München, í Þýskalandi. Þetta kemur fram í Kicker.
Þessi 32 ára gamli framherji er langmarkahæstur í þýsku deildinni á tímabilinu með 24 mörk og er alls kominn með 38 mörk í öllum keppnum.
Samningur hans við Bayern rennur út á næsta ári en Kane hefur ekki tekið ákvörðun um næstu skref.
Kicker segir að Kane sé með 70 milljóna evra klásúlu í samningi sínum sem Al Ittihad og Al Ahli í Sádi-Arabíu eru reiðubúin að virkja.
Klásúlan er þó aðeins virk út þennan mánuð og til að virkja hann þarf Kane að tjá Bayern að hann vilji fara.
Kane er sagður ánægður með lífið í München og ekki vitað hvort hann hafi yfir höfuð áhuga á því að flytja fjölskyldu sína til Sádi-Arabíu.
Englendingurinn hefur einnig verið orðaður við endurkomu í ensku úrvalsdeildina og hafa enskir miðlar haldið því fram að Tottenham hafi sett endurkaupsrétt í samninginn er hann var seldur til Bayern fyrir 86,4 milljónir punda árið 2023.
Athugasemdir




