Tonali ofarlega á lista Man Utd - Chiesa gæti farið til Ítalíu - Tottenham ætlar ekki að kaupa Kolo Muani
banner
   mán 09. febrúar 2026 21:54
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikar kvenna: Skoraði þrennu í stórsigri á Fram
Kvenaboltinn
Freyja Stefánsdóttir skoraði þrennu gegn Fram
Freyja Stefánsdóttir skoraði þrennu gegn Fram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur R. 7 - 0 Fram
1-0 Elísa Birta Káradóttir ('4 )
2-0 Freyja Stefánsdóttir ('11 )
3-0 Freyja Stefánsdóttir ('17 )
4-0 Bergdís Sveinsdóttir ('25 )
5-0 Freyja Stefánsdóttir ('51 )
6-0 Jóhanna Elín Halldórsdóttir ('52 )
7-0 Bergþóra Sól Ásmundsdóttir ('90 )

Freyja Stefánsdóttir skoraði þrennu er Víkingur vann 7-0 stórsigur á Fram í riðli 2 í A-deild Lengjubikarsins á Víkingsvellinum í kvöld.

Víkingar byrjuðu sterkt og komust í þriggja marka forystu eftir aðeins sautján mínútur.

Elísa Birta Káradóttir kom þeim á bragðið á 4. mínútu og bætti Freyja Stefánsdóttir við tveimur mörkum með sex mínútna millibili.

Fyrirliðinn Bergdís Sveinsdóttir gerði fjórða markið á 25. mínútu og fóru heimakonur inn í hálfleikinn með þægilega forystu.

Freyja fullkomnaði þrennu sína á 51. mínútu og mínútu síðar skoraði Jóhanna Elín Halldórsdóttir sjötta markið. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir gerði síðan sjöunda og síðasta mark Víkings stuttu fyrir leikslok.

Draumabyrjun hjá Víkingum sem mæta næst Val þann 21. febrúar á meðan Framarar fá Tindastól í heimsókn á Lambhagavöllinn á laugardag.
Athugasemdir
banner