Spænski miðjumaðurinn Mikel Merino gekkst undir aðgerð á hægri fæti í dag og er á batavegi en hann greinir frá þessu á Instagram í dag.
Merino meiddist í tapinu gegn Manchester United í síðasta mánuði, en hann kom inn af bekknum og skoraði áður en Arsenal fékk þær slæmu fréttir eftir leikinn að hann væri með brotið bein í fæti.
Hann verður frá næstu vikur og jafnvel mánuði eftir að hafa farið undir hnífinn í dag.
„Ég er þegar nær því að snúa aftur á völlinn. Takk fyrir alla þá jákvæðu strauma sem ég hef fengið,“ sagði Merino.
Arsenal er á toppnum í ensku úrvalsdeildinni með sex stiga forystu á Manchester City í titilbaráttunni þegar þrettán umferðir eru eftir.
Merino hefur átt stóran þátt í velgengi Arsenal en hann hefur komið að sjö mörkum í 21 leik í deildinni á leiktíðinni.
Athugasemdir



