Argentínski þjálfarinn Mauricio Pochettino er með það markmið að vinna ensku úrvalsdeildina á þjálfaraferli sínum, en hann sagði frá þessu í hlaðvarpsþættinum High Performance.
Pochettino stýrði Chelsea, Southampton og Tottenham í ensku úrvalsdeildinni, en náði ekki þessu langþráða markmiði sínu þar.
Hann fór með Tottenham í úrslit Meistaradeildarinnar árið 2019, en tapaði þar fyrir Liverpool. Þá komst hann í úrslit deildabikarsins tvisvar, en tapaði í bæði skiptin.
Í dag þjálfar hann landslið Bandaríkjanna sem verður gestgjafi HM í sumar.
Pochettino ætlar sér að snúa aftur með þjálfarateyminu í ensku úrvalsdeildina og vinna hana.
„Já, trúi því. Það er mikilvægt því ef þú hefur ekki trúna, hungrið, ástríðuna og baráttuna þá er erfiðara fyrir þig að ná því afreki.“
„Meistaradeildin er mögnuð og er líka alger draumur, alveg eins og með HM.“
„Við elskum samt enska fótboltann, því hann fæddist þar. Við vorum svo heppnir að eyða miklum tíma á Wembley sem er goðsagnarkenndur fyrir okkur. Það er stórkostlegur leikvangur.“
„Við munum reyna á þetta en með hvaða félagi veit ég ekki. Núna erum við þjálfarateymið að upplifa okkar bestu augnablik því við erum enn ungir og með orku. Ég tel mig geta verið betri því það er alltaf hægt að bæta sig, en í dag tel ég okkur hafa alla burði, þekkingu og jafnvægi til þess að gera góða hluti með hvaða félag sem er,“ sagði Pochettino.
Athugasemdir




