Brasilíski sóknarsinnaði miðjumaðurinn Nene, sem fagnar 45 ára afmæli sínu síðar á þessu ári, hefur samið við sextánda félagið á ferlinum, en hann mun leika með Botafogo PB á komandi leiktíð.
Nene er hvað þekktastur í Evrópu fyrir að hafa spilað með Mónakó, Paris Saint-Germain og West Ham.
Hans besta tímabil var 2011-2012 er hann varð markahæsti leikmaður frönsku deildarinnar er hann var á mála hjá PSG, og þá var hann í liði ársins tvö ár í röð.
Snemma árs 2015 samdi hann við West Ham út tímabilið en lék aðeins átta leiki og lifir hann ekki lengi í minningu stuðningsmanna West Ham enda kom lítið úr honum.
Síðustu ellefu ár hefur hann spilað í heimalandinu með Fluminense, Sao Paulo, Vasco Da Gama og Juventude, og náði þeim merka áfanga á síðustu leiktíð að spila sinn 1000. leik á ferlinum. Nú er hann kominn í Botafogo PB sem leikur í Seríu C í Brasilíu en samningurinn er út árið.
Hann snýr aftur í C-deildina 25 árum eftir að hafa spilað þar, en þá varð hann meistari með Paulista, þar sem hann hóf meistaraflokksferil sinn.
Nene er í 21. sæti á lista yfir leikjahæstu leikmenn allra tíma, en það ótrúlega er að hann er aðeins einn af tíu á fimmtíu manna lista til þess að hafa aldrei spilað A-landsleik.
Hann lék ellefu leiki og skoraði fjögur mörk fyrir yngri landsliðin.
2015: Nenê chega ao Brasil pra encerrar a sua carreira no Vasco
— Bola Fora (@oficialbolafora) January 10, 2026
2026: Nenê acerta com o Botafogo da Paraíba pra disputar a Série C
Inimigo da aposentadoria kkkkkkkkkkkkkkkkkkk pic.twitter.com/wvcBbRmC3M
Athugasemdir


