Tonali ofarlega á lista Man Utd - Chiesa gæti farið til Ítalíu - Tottenham ætlar ekki að kaupa Kolo Muani
   mán 09. febrúar 2026 12:30
Kári Snorrason
Stuðningsmenn Sociedad búnir að semja lag um Orra
Orri er að snúa aftur með krafti eftir margra mánaða meiðsli.
Orri er að snúa aftur með krafti eftir margra mánaða meiðsli.
Mynd: EPA
Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson hefur farið afar vel af stað með Real Sociedad eftir að hafa glímt við erfið meiðsli.

Hann skoraði í spænska konungsbikarnum á miðvikudag og fylgdi því eftir með marki í deildarleik gegn Elche á laugardaginn. Markið um helgina var annað deildarmark Orra á tímabilinu og það fyrsta síðan í ágúst.

Stuðningsmenn Sociedad eru að vonum ánægðir með frammistöðu framherjans og hafa nú samið lag honum til heiðurs. Lagið hljóðar svo:

Kaffi á morgnana
Romm á kvöldin
Farðu með mig til Sevilla
Orri Óskarsson


Stuðningsmaður Real Sociedad birti myndband af söngnum þar sem heyra má hann óma í hátalarakerfi Anoeta leikvangarins, heimavelli Sociedad og má sjá það hér að neðan.


Athugasemdir
banner