Andri Fannar Baldursson og félagar hans í Kasimpasa töpuðu þriðja deildarleiknum í röð er liðið lá fyrir Gaziantep, 2-1, í tyrknesku úrvalsdeildinni í kvöld.
Miðjumaðuirnn var á sínum stað í byrjunarliði Kasimpasa sem komst í forystu á 16. mínútu en heimamenn í Gaziantep sneru við taflinu með tveimur mörkum á tólf mínútum.
Drissa Camara, sem lagði upp seinna mark Gaziantep, sá rauða spjaldið undir lok fyrri hálfleiksins fyrir ljóta tæklingu og stuttu síðar áttu gestirnir skot í stöngina.
Andri fór af velli eftir klukkutímaleik og fengu Kasimpasa-menn fá upplögð marktækifæri til að skora. Besta tilraunin kom í uppbótartíma síðari hálfleiks er Irfan Kahveci lét vaða fyrir utan teig en boltinn fór rétt yfir markið.
Þriðja tap Kasimpasa í röð sem er í 16. sæti með 16 stig, fjórum stigum frá botninum.
Athugasemdir



