Tonali ofarlega á lista Man Utd - Chiesa gæti farið til Ítalíu - Tottenham ætlar ekki að kaupa Kolo Muani
   mán 09. febrúar 2026 10:05
Elvar Geir Magnússon
Tonali ofarlega á lista Man Utd - Chiesa gæti farið til Ítalíu
Powerade
Sandro Tonali.
Sandro Tonali.
Mynd: EPA
Federico Chiesa.
Federico Chiesa.
Mynd: EPA
Manchester United vill fá inn miðjumann næsta sumar og Liverpool gæti selt sóknarleikmann til Ítalíu. Þetta og meira í slúðurpakkanum þennan mánudaginn.

Sandro Tonali (25), miðjumaður Newcastle, er ofarlega á lista Manchester United yfir leikmenn til að fylla skarð Casemiro (33) sem yfirgefur Old Trafford í sumar. (Telegraph)

Liverpool er opið fyrir því að leyfa ítalska framherjanum Federico Chiesa (28) að færa sig um set og vill um 22-26 milljónir punda fyrir ítalska landsliðsmanninn. Juventus, Napoli og Roma eru mögulegir áfangastaðir hans. (Caughtoffside)

Tottenham hyggst ekki kaupa Randal Kolo Muani (27) en franski landsliðsmaðurnn er á láni hjá félaginu frá Paris St-Germain. (Teamtalk)

Liverpool gæti keypt miðvörðinn Jarrel Quansah (23) aftur til félagsins frá Bayer Leverkusen á næsta ári en þá verður endurkaupsákvæði virkt. (Football Insider)

Alex Jimenez (20) verður keyptur til Bournemouth á 17 milljónir punda frá AC Milan þar sem síðasti leikur spænska bakvarðarins virkjaði ákvæði í lánssamningnum um að enska félagið sé skyldugt til að kaupa hann. (Fabrizio Romano)

Manchester City hefur áhuga á að fá enska miðjumanninn Kiernan Dewsbury-Hall (27) frá Everton fyrir um 40 milljónir punda. (Fichajes)
Athugasemdir
banner
banner