Vilhelm Ottó Biering Ottósson verður áfram í herbúðum Þórs á Akureyri, en hann hefur framlengt samning sinn við félagið út keppnistímabilið 2027.
Vilhelm er 24 ára gamall og á 59 leiki að baki með meistaraflokki Þórs.
Á síðasta ári lék hann 21 leik í deild og skoraði eitt mark er Þór varð Lengjudeildarmeistari og tryggði um leið sæti sitt upp í Bestu deildina.
Nú er það klappað og klárt að hann verður áfram hjá Þórsurum, en samningurinn mun gilda út næsta ár.
Athugasemdir




