FH tilkynnti í síðustu viku um komu Tobias Carlsson til félagsins. Tobias er þrítugur sænskur miðvörður sem kemur frá Sirius í sænsku úrvalsdeildinni. FH var á síðasta tímabii með sænska miðvörðinn Ahmad Faqa á láni frá AIK og nú er að koma nýr Svíi í Kaplakrika.
„Hann kom til okkar út frá því að við vorum að leita að miðverði sem hentar inn í það sem við erum að reyna gera. Það var ákveðið 'scouting' hjá okkur sem gerði það að verkum að hann kom á radarinn hjá okkur og svo skoðuðum við hann ennþá betur. Við sáum að hann passar mjög vel inn í það sem við viljum gera. Hann mætir hingað um næstu helgi," segir Davíð Þór Viðarsson sem er yfirmaður fótboltamála hjá FH.
Eru þetta umboðsmannatengsl eða eitthvað svoleiðis?
„Nei, við notuðum bara þau tæki og tól sem við erum með til þess að njósna (e. scout) og finna leikmenn."
Undirritaður spurði Davíð á léttu nótunum hvort það hefði þurft að hækka aldursstillinguna í 'GoalUnit' forritinu sem FH, og fleiri félög, nýta sér.
„Eins og ég hef alltaf sagt og við höfum verið mjög skýrir með, þá er mjög mikilvægt að vera með reynslu í bland við unga leikmenn. Hann passar mjög vel inn, er með mjög fína reynslu úr sænsku úrvalsdeildinni. Allar umsagnirnar sem við fengum um hann frá Svíþjóð voru mjög jákvæðar, bæði fótbolta- og karakterslega séð. Við bindum miklar vonir við að hann geti verið eitt af hryggjarstykkjunum í ár."

Þá keyrum við á það
Eru FH-ingar að leita að styrkingu á markaðnum, jafnvel framherja eftir að Sigurður Bjartur Hallsson var seldur?
„Við erum að skoða þá möguleika sem eru í boði. Hvort sem það er framherji eða annað þá er dálítil vinna sem þarf að leggja inn til að auka líkurnar á því að það sem við viljum að gerist heppnist. Við höldum því opnu. Ef við finnum ekki eitthvað sem við erum nokkuð vissir um að hjálpi okkur eða styrki okkur, þá er ekki mikill tilgangur í því að ná í þann leikmann. Við gefum okkur tíma, ef við finnum eitthvað sem okkur líst vel á og er raunhæfur kostur þá keyrum við á það. Annars höldum við áfram að vinna með þá leikmenn sem við höfum, þeir eru allir á mjög góðum stað," segir Davíð.
Í síðustu viku kvaddi Böðvar Böðvarsson félagið og hefur mikið verið rætt og ritað um þá ákvörðun FH að leyfa honum að fara.
Var ekki léttir að sjá liðið vinna mjög sannfærandi sigur á Þrótti á föstudag eftir stormasama viku?
„Þetta var áhugaverð vika, gerðist mikið. Það var mjög gaman að sjá liðið spila á föstudaginn og sjá hvað menn voru klárir. Það var gaman og jákvætt að sjá að menn voru að reyna gera það sem fyrir þá var lagt og að það hafi gengið svona vel upp. Það eru tveir mánuðir í mót og það er fullt af hlutum sem við þurfum að halda áfram að vinna í til að vera klárir 12. apríl," segir Davíð.
Athugasemdir