Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   þri 10. febrúar 2026 11:02
Elvar Geir Magnússon
Hver verður í hægri bakverði hjá Liverpool? - Langerfiðasta tímabil Slot
Verður Curtis Jones í hægri bakverði?
Verður Curtis Jones í hægri bakverði?
Mynd: EPA
Arne Slot kemur úr liðsrútu Liverpool.
Arne Slot kemur úr liðsrútu Liverpool.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Sunderland mætir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld. Stóra spurningin varðandi liðsval Arne Slot snýr að því hver verði í hægri bakverðinum.

Þeir fjórir leikmenn sem helst hafa leyst stöðuna á þessu tímabili eru annað hvort að glíma við meiðsli eða í banni.

Dominik Szoboszlai, sem hefur leyst stöðuna, er í banni. Conor Bradley og Geovanni Leoni eru meiddir og Jeremie Frimpong að glíma við meiðsli í læri. Joe Gomez er nýkominn aftur til æfinga.

Mögulegt er talið að Andy Robertson, vinstri bakvörður, spili út úr stöðu og leysi hægri bakvörðinn.

„Joe Gomez hefur ekki klárað heila æfingu en ég býst við honum á æfingunni í dag. Ef hann er ekki klár í að byrja þá erum við án fjögurra leikmanna sem hafa spilað þá stöðu," segir Slot.

„En Curtis Jones og Wataru Endo hafa spilað þessa stöðu á þessu tímabili svo við erum búnir að nota sex mismunandi hægri bakverði."

Sparkspekingurinn Paul Merson telur líklegast að Curtis Jones muni spila hægri bakvörðinn annað kvöld.

Eru þarna til að fara eftir reglum
Á fréttamannafundi í dag var Slot spurður út í rauða spjaldið umtalaða sem Szoboszlai fékk gegn City.

„Mínar tilfinningar hafa ekki breyst. Þegar ég sá rauða spjaldið var ég svekktur að þurfa að vera án hans gegn Sunderland. En á hinn bóginn þá tel ég að dómarinn hafi gert það sem hann þurfti að gera. Svona er reglubókin og dómararnir eru þarna til að framfylgja henni," segir Slot.

Þurfa að vera nálægt fullkomnun
Slot segir að þetta tímabil hafi verið það langerfiðasta á þjálfaraferli sínum og viðurkennir að spilamennska Liverpool hafi verið undir væntingum og kröfum. Hann viðurkennir að það verði erfitt verkefni að landa Meistaradeildarsæti.

„Við þurfum að spila nálægt fullkomnun vegna þeirrar stöðu sem við erum í. Efstu liðin eru ekki vön því að tapa mörgum stigum svo við þurfum að vinna marga leiki, við þurfum að bæta okkur og vera nálægt fullkomnun," segir Slot.

„Það er svo mjótt á munum. Sjö mínútum fyrir leikslok vorum við fimm stigum á eftir City og fimm mínútum síðar vorum við ellefu stigum á eftir þeim."

„Þetta hefur verið langerfiðasta tímabil mitt sem stjóri, ég hef ekki kynnst því áður að tapa tveimur leikjum í röð. Leikmenn eru heldur ekki vanir því að tapa og gera jafntefli í svona mörgum leikjum. Þetta hefur verið mikil áskorun en ég sé bætingu. Frammistaðan er mun betri núna en í byrjun tímabils."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 29 19 7 3 58 22 +36 64
2 Man City 28 18 5 5 57 25 +32 59
3 Man Utd 28 14 9 5 50 38 +12 51
4 Aston Villa 28 15 6 7 38 30 +8 51
5 Liverpool 28 14 6 8 47 37 +10 48
6 Chelsea 28 12 9 7 49 33 +16 45
7 Brentford 28 13 4 11 44 40 +4 43
8 Everton 28 11 7 10 32 33 -1 40
9 Fulham 28 12 4 12 40 42 -2 40
10 Bournemouth 28 9 12 7 44 46 -2 39
11 Brighton 28 9 10 9 38 35 +3 37
12 Sunderland 28 9 10 9 29 34 -5 37
13 Newcastle 28 10 6 12 40 42 -2 36
14 Crystal Palace 28 9 8 11 30 34 -4 35
15 Leeds 28 7 10 11 37 47 -10 31
16 Tottenham 28 7 8 13 38 43 -5 29
17 Nott. Forest 28 7 6 15 26 41 -15 27
18 West Ham 28 6 7 15 34 54 -20 25
19 Burnley 28 4 7 17 32 56 -24 19
20 Wolves 29 2 7 20 20 51 -31 13
Hvernig fer Arsenal - Chelsea á sunnudag?
Athugasemdir
banner
banner